Valvíst nám. Blandað form kennslu sem býður mikinn sveigjanleika í þátttöku
Vefstofa
Eftir því sem fleiri sjá nám sem leið til að skipta um starfsferil, auka hæfni sína og axla ábyrgð í starfi, finna námskeiðshönnuðir og kennarar að þeir búa á spennusvæði milli þarfar fyrir sveigjanleika í námi og vilja til að bjóða vandað nám sem felur í sér markvisst umbreytandi nám í virku námssamfélagi.
HyFlex módelið (Beatty, 2019) eða “Valvíst nám” eins og við höfum valið að kalla það, er nálgun sem er hönnuð einmitt til að bjóða upp á hvort tveggja.
Á þessari vefstofu munum við kynna þetta kennslufyrirkomulag og vega það og meta í ljósi kennslufræðilíkans og gagna úr spurningakönnunum frá tveimur nýlegum árgöngum.
Tungumál: íslenska
Skráning: https://forms.office.com/e/nF4MSxBxte
Staður: Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/3545254000?pwd=xfWI2kHO8bbYRuR132v2I4aXj5UGT5.1&omn=65464732581&from=addon
(Fundarauðkenni: 354 525 4000 / Lykilorð: haust2024)
Vefstofan er samstarfsverkefni: Fjarska – Samtaka um fjarnám og stafræna kennsluhætti og Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands.