Gervigreind í kennslu: Að búa til krossapróf fyrir Canvas með ChatGPT og Perplexity
Guðmundur Björnsson, aðjunkt og faglegur umsjónarmaður leiðsögunáms Endurmenntunar HÍ, mun í þessari vefstofu sýna hvernig gervigreindartól eins og ChatGPT og Perplexity geta auðveldað gerð krossaprófa. Hann fer í gegnum raunverulegt vinnuferli þar sem kennslugögn eru notuð til að búa til spurningar, yfirfara þær og laga, og að lokum flytja í krossapróf í Canvas og Inspera. Hann ræðir um hvernig hægt er að tryggja gæði spurninga og nýta gervigreind sem hjálpartæki í kennslu.
